Gistimiðar á Hótel Eddu og Fosshótel
Orlofssjóður VLFA niðurgreiðir gistingu á Hótel Eddu og Fosshótelum til félagsmanna. Félagsmenn bóka sjálfir á hótelunum, en taka fram að þeir muni greiða með gistimiða frá stéttarfélagi. Gistimiðarnir eru til sölu á skrifstofu félagsins á um 50% af almennu söluverði. Einn punktur er dregin af félagsmanni fyrir hvern keyptan miða. Sölutímabil gistimiða á Edduhótel er frá maí til júlí. Sölutímabil gistimiða á Fosshótel er allt árið um kring.
Miðað er við að hver félagsmaður geti keypt fimm gistimiða á ári og eru þeir einungis ætlaðir til notkunar fyrir félagsmenn sjálfa.