Birkihlíð 6, Húsafelli
Bústaðurinn er 82 m2 með þremur svefnherbergjum og gestahúsi. Í hverju svefnherbergi er hjónarúm og í gestahúsi er hjónarúm og svefnsófi. Sængur og koddar eru fyrir 12 manns. Góður pallur er í kringum bústaðinn, heitur pottur, gasgrill og garðhúsgögn.
Lyklar eru afhentir á skrifstofu félagsins, Þjóðbraut 1, ásamt tuskum og gólfmoppu. Gestir þurfa sjálfir að fara með rúmföt, handklæði, diskaþurrkur og salernispappír.
Hægt er að sjá fleiri myndir hér. Kort af sumarhúsabyggðinni í Húsafelli er hér.