• Þjóðbraut 1, 300 Akranes
  • Mán - Fim: 8:00 - 16:00, Föstudaga 08:00 - 15:15

Reikningsupplýsingar orlofssjóðs

Reikningsnúmer: 0186-05-570355
Kt. 680269-6889

Orlofshús Verkalýðsfélags Akraness

Verkalýðsfélag Akraness á 10 orlofshús og þrjár íbúðir á Akureyri.

Hægt er að skoða lausar helgar yfir vetrartímann og bóka beint á félagavefnum.

Nánari upplýsingar um hvert hús má lesa hér á heimasíðunni undir Orlofssjóður.

Sérstök úthlutun fer fram vegna sumartímabils sem og páskavikunnar.

Ein íbúð félagsins á Akureyri er allajafna í lantímaleigu yfir vetrartímann til félagsmanna sem stunda nám fyrir norðan - nánari upplýsingar fást á skrifstofu félagsins.

Orlofseignir eru leigðar frá miðvikudegi til miðvikudags á tímabilinu 31. maí - 30. ágúst.

Á sumrin er boðið upp á dvöl í orlofshúsum félagsins í Húsafelli (4), Svínadal (2), Hraunborgum (1), Ölfusborgum (1), Kjós (1) og íbúðir á Akureyri (3).

Boðið verður upp á leigu á íbúð í Stykkishólmi sumarið 2023.

Opnað er fyrir rafrænar umsóknir þann 1. apríl 2023 og umsóknarfrestur er til 21. apríl.

Hægt er að sækja um á félagavefnum eða skila inn útfylltu umsóknareyðublaði á skrifstofu, Þjóðbraut 1. 

Nánari upplýsingar um orlofshúsin má sjá í bæklingnum.

Bæklingur 2023

Umsóknareyðublað 2023 

 Verð fyrir vikuleigu sumarið 2023

  • Efstiás í Svínadal - 22.000 kr.
  • Bláskógar í Svínadal - 22.000 kr. 
  • Ásendi 10 í Húsafelli - 22.000 kr.
  • Hraunbrekkur 2 í Húsafelli - 22.000 kr.
  • Ásendi 9 í Húsafelli - 25.000 kr.
  • Birkihlíð í Húsafelli - 25.000 kr.
  • Ölfusborgir - 22.000 kr.
  • Hraunborgir - 22.000 kr.
  • Kjós - 22.000 kr.
  • Hornsteinn við Glym í Hvalfirði - 25.000 kr.
  • Íbúð á Akureyri - 22.000 kr.
  • Íbúð í Stykkishólmi - 22.000 kr. 

Helstu dagsetningar 2023:

21. apríl - Síðasti dagur til að skila inn umsóknum um orlofshús

24. apríl - Fyrri úthlutun fer fram, allir umsækjendur fá svar í tölvupósti (einnig er hægt að sjá strax hvort bókun hafi myndast inni á Félagavefnum)

2. maí  - Eindagi fyrri úthlutunar. Þær vikur sem ekki eru greiddar á eindaga er úthlutað aftur

3. maí  - Endurúthlutun fer fram, þeir sem fá úthlutað fá það staðfest í tölvupósti (einnig hægt að sjá strax hvort bókun hafi myndast inni á félagavefnum).

 - Kl. 12:00 - Fyrstir koma, fyrstir fá! Hægt að bóka lausar vikur á Félagavefnum og á skrifstofu (athugið að eftir eindaga endurúthlutunar getur lausum vikum fjölgað)

10. maí - Eindagi endurúthlutunar, ógreiddar vikur verða lausar til bókunar á Félagavefnum.

Úthlutun fer þannig fram að allar umsóknir eru skráðar inn í tölvukerfi félagsins. Kerfið raðar öllum umsóknum í röð eftir punktastöðu, þ.e. þeir umsækjendur sem flesta hafa punktana eru fremstir í röðinni og svo koll af kolli. Ef punktar tveggja eru jafnir fær sá eldri úthlutað. Kerfið vinnur sig síðan í gegnum umsóknirnar og úthlutar vikum eftir punktastöðu.

Þeir sem ekki fá úthlutað í fyrri úthlutun lenda sjálfkrafa í endurúthlutun þar sem þeim vikum er úthlutað sem ekki voru greiddar á eindaga fyrri úthlutunar. Fyrir endurúthlutun er heimilt að breyta umsóknum og leggja inn nýjar. Eftir eindaga endurúthlutunar verða lausar vikur auglýstar hér á heimasíðunni og hægt verður að bóka þær á Félagavefnum og á skrifstofu félagsins. Gildir þá hin ágæta regla: Fyrstur kemur, fyrstur fær.

Þau orlofshús sem eru leigð út í vetur eru í Húsafelli, Kjós, Hvalfirði, Hraunborgum, Ölfusborgum, Svínadal og á Akureyri. 

Verð helgarleigu yfir vetrartímann er eftirfarandi;

  • Efstiás í Svínadal - 15.000 kr. (stök nótt 5.000 kr.).
  • Bláskógar í Svínadal - 15.000 kr. (stök nótt 5.000 kr.).
  • Ásendi 9 í Húsafelli - 18.000 kr. (stök nótt 6.000 kr.).
  • Hraunbrekkur 2 í Húsafelli - 15.000 kr. (stök nótt 5.000 kr.)
  • Ásendi 10 í Húsafelli - 15.000 kr. (stök nótt 5.000 kr.).
  • Birkihlíð í Húsafelli - 18.000 kr. (stök nótt 6.000 kr.).
  • Ölfusborgir - 15.000 kr. (stök nótt 5.000 kr.).
  • Hraunborgir - 15.000 kr. (stök nótt 5.000 kr.).
  • Kjós - 18.000 kr. (stök nótt 6.000 kr.)
  • Hornsteinn við Glym í Hvalfirði - 18.000 kr. (stök nótt 6.000 kr.).
  • Íbúð á Akureyri - 15.000 kr. (stök nótt 5.000 kr).

 

Verð vikuleigu yfir vetrartímann í stærri húsin - (Ásendi 9, Birkihlið, Hornsteinn við Glym) 25.000 kr.

Verð vikuleigu yfir vetrartímann í önnur hús: 22.000 kr.

Tekið er við bókunum í öll orlofshúsin á félagavef og á skrifstofu félagsins. Gert er ráð fyrir að leigutakar gangi frá leigusamningi og greiði leigugjaldið sem fyrst eftir bókun. Ef bókað er á félagavefnum þarf að greiða innan 12 klst. annars fellur bókunin niður.

Upplýsingar um lyklaafhendingu eru á leigusamningi sem fæst þegar greiðslu er lokið.

Ein til tvær af íbúðum félagsins á Akureyri eru í fastri útleigu yfir vetrartímann, oft til félagsmanna sem stunda nám á Akureyri. Áhugasamir hafið samband við skrifstofu félagsins.

5.-11.apríl 2023

Páskavikan er leigð út í heilu lagi, frá miðvikudegi til miðvikudags.

Þar sem alltaf er mikil ásókn í dvöl í orlofshúsum þessa viku er sá háttur hafður á að þeir sem hafa áhuga á dvöl þessa viku leggja inn umsókn í pott. Einn pottur er fyrir hvert orlofshús og hægt er að sækja um á ákveðnum stöðum eða þeim öllum. Dregið er úr pottunum af handahófi, punktastaða skiptir ekki máli og ekki eru dregnir af punktar við úthlutun. Hringt er í þann sem dreginn er út og geti hann ekki nýtt sér vikuna, er dregið aftur. Greiða þarf leigu strax. 

Tekið er á móti umsóknum á skrifstofu félagsins Þjóðbraut 1 og í síma 4309900 - 13.- 18. mars 2023

Einnig er hægt að senda nafn, kennitölu, símanúmer og hvaða orlofshúsi óskað er eftir, á netfangið vlfa@vlfa.is

Dregið verður þann 22. mars 2023 og hringt strax í þá sem dregnir eru út.

Style Switcher
Layout Style
Predefined Colors
Background Image